Arnþrúður Eik Helgadóttir

Verkefnastjóri Fjölmennt

1 note

Ég um mig…

Vááá, þarf maður ekki að skrifa eitthvað rosa frumlegt í svona blogg? Segja á einhvern fáránlega skemmtilegan hátt um mig og mína. Veit ekki hvort ég get það, finnst ég eitthvað svo venjuleg þegar ég reyni að hugsa um það hvað ég á að skrifa. Gæti rekið ættir mínar og sagt frá helsu afrekum í lífi mínu, það er hugmynd. Gæti sagt frá manninum mínum sem heitir Húni og er ísbjarnarsérfræðingur (heitir Húni og elskar ísbirni.. sniðugt, ég veit). Ég gæti sagt frá kettinum mínum sem hefur verið valinn feitasti köttur Akureyrar 3 ár í röð. Eða ég gæti sagt frá hundinum mínum sem er vandræðalega ofdekraður íslenskur fjárhundur. Svo er það auðvitað kötturinn Mía sem er harðákveðin í því að búa heima hjá mér, feitasta ketti Akureyrar til mikillar mæðu. En finnst það samt einhvern veginn ekkert góð hugmynd að segja frá þessu.

Ég hef hins vegar heyrt að myndir segi meira en þúsund orð þannig að ég set bara inn eina mynd af mér. Á uppáhaldsstaðnum mínum með uppáhalds göngufélaganum mínum :)

Maður hættir ekki að leika sér af því að maður verður gamall..                       maður verður gamall af því að maður hættir að leika sér.

  1. leoline-hansen reblogged this from arnthrudursimey
  2. arnthrudursimey posted this